Björgvin Pál Gústavsson þekkja flestir landsmenn sem hinn litríka markvörð íslenska landsliðsins í handbolta. Hér skrifar Sölvi Tryggvason sögu Björgvins, þar sem hann lýsir á hreinskilinn og persónulegan hátt uppvexti sínum við erfiðar aðstæður, haldreipinu sem hann fann í handboltanum, áratuga feluleiknum sem á endanum varð til þess að hann hrundi líkamlega og andlega og bataferlinu sem enn stendur yfir.